Microcross

  • Skoða sem PDF skjal

Hvað er  Microcross?
Microcross er í raun motocross á litlum mótorhjólum ætluðum börnum á aldrinum 6-12 ára.  Þessi hjól eru með vélarrúmmál á bilinu 50-85 cc 2T og er  hægt að stilla hversu miklu afli vélarnar skila. Þannig er hægt að stilla hraðanum í hóf.

Ekið er á sérútbúnum brautum  sem eru sérstaklega ætlaðar þessum aldurshóp.  Brautin er lögð í sandi, mold eða öðrum lausum jarðvegi, og samanstendur af mörgum beygjum til þess að draga úr hraðanum. Litlir stökkpallar eru lagðir á beinu kaflana.  Einnig er reynt að hafa brautirnar eins opnar og hægt er svo að  foreldrar  eigi auðvelt með að grípa inn í ef eitthvað fer úrskeðis.

 

Hvers vegna leggur AÍH rækt við Microcross?

Eitt af meginmarkmiðum AÍH er að leggja stund á félagsstarf í akstursíþróttum fyrir börn.  Það er skoðun félagsmanna að börn eigi að hafa kost á því að prófa sem flestar íþróttagreinar, og taka þátt í þeim sem leik en ekki keppni.  Með þessum hætti byggjum við einnig upp íþróttina á eðlilegan hátt.  Það er okkar skoðun að nýliðun í motocross þurfi að eiga sér stað fyrst og fremst í gegnum Microcross.  Það er mun heilbrigðara og áhættuminna að einstaklingarnir alist upp með íþróttinni í stað þess að koma inn í hana á unglings eða gamals aldri.   Talsvert hefur verið flutt inn af barnahjólum ætluðum til notkunar í Microcross síðastliðin ár.  Þessi hjól eru flest í fullri notkun og eru foreldrar að “pukrast” með börnunum sínum upp í sumarbústöðum eða í malargryfjum í nágrenni byggðar.  Akstursíþróttafélög hafa ekki gert neitt til þess að skipuleggja eða koma á félagsstarfi fyrir þennan hóp.  Þessu vill AÍH breyta með því að skipuleggja æfingar í Microcross og skapa þannig aðstöðu fyrir greinina.

Við viljum taka það fram að þær öryggiskröfur sem gerðar eru í Microcross hvað varðar búnað og reglur eru mjög strangar,  og leyfum við okkur að fullyrða að mun hættulegra er t.d. fyrir börn að hjóla um á reiðhjóli en að aka Microcrosshjóli, sé farið eftir þessum reglum.