Rallycross

  • Skoða sem PDF skjal

Rallycrossdeild AÍH (RCA) var stofnuð 1991 samhliða byggingur nýrrar rallycrossbrautar við

Krísuvíkurveg, Rallycrossdeildin eða Rallýkrossklúbburinn eins og deildin hét þá hafði veg og vanda

í samstarfi við BÍKR að halda úti rallycrosskeppnum til ársinns 2000. En þá tóku félagsmenn RCA við

keppnishaldi og æfingum.

 

2002 Stofnaði svo Rallycrossklúbburinn Akstursíþróttarfélag Hafnarfjarðar (AÍH) með tveimur

öðrum félögum til að standa vörð um íþróttarstarfið og stuðla þannig að uppbyggingu á svæðinu

mótorsporti til framdráttar.

 

Starfsemi félagsins byggist á rallycross sem er akstursíþrótt. Rallycross er haldið á lokuðum brautum

sem eru á bilinu 800 – 1200m langar og eru keyrðir um fimm hringir í hverjum riðli.

 

Félagið heldur úti virku félagstarfi og keppnishaldi í rallycrossi sem stuðlar að ábyrgri notkun

bifreiða sem ætlaðar eru til akstursíþrótta og vinnur að hvers kyns slysaforvörnum með sínum

aðildarfélögum.

 

Mikilvægur hluti félagins er unglingastarf og er unglingum frjálst að æfa/keppa í rallycrossi eftir 15

ára aldur með samþykki forráðamanna og undir eftirliti.

 

Öllum er frjálst að verða félagi í félaginu að því tilskyldu að viðkomandi greiði félagsgjald ár hvert og

sé skuldlaus við félagið, Félagar yngri en 15 ára geta verið félagar í félaginu án greiðslu félagsgjalds

 

Keyrt er eftir fimm flokkum sem eru:

 

Unglingaflokkur: Ökumenn 15 - 17.ára og Ökutæki allt að 1400ccm, bifreiðar með drif á einum öxli.

 

Opinn flokkur: Ökutæki 0 – 1400 kg, á ráslínu með ökumanni, sérsmíðuð farartæki, allt leyfilegt svo

framarlega sem það stenst öryggiskröfur

 

2000 flokkur: Eindrifsbílar með vél undir 2080ccm, hámarksþyngd 1300kg.

 

2WD Krónuflokkur: Einsdrifsbílar undir 1300kg, vélarstærð hámark 2500ccm. Söluskylda 190,000.kr

 

4WD Krónuflokkur: Fjórhjóladrifsbílar undir 1300kg, vélarstærð hámark 2500ccm. Söluskylda

250,000.kr

 

Rallycrossdeild AÍH

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 13. júlí 2011 16:22