Götuhjóla Deild

Um Götuhjóladeildin

  • Skoða sem PDF skjal

Road Race deild AÍH14. mars 2007 var samþykkt á aðalfundi Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar (AÍH) tillaga fjórtán einstaklinga um að stofna götuhjóladeild innan félagsins.
Með stofnun deildarinnar var stigið stórt skref til framfara fyrir þá sem stunda akstursíþróttir á götumótorhjólum. Þar með gefst þeim sem hafa áhuga á að leggja stund á “Road Race” á Íslandi tækifæri á að ganga í deild í fullgildu íþróttafélagi sem hefur eingöngu götumótorhjólaakstur á stefnuskránni og að taka þátt í að byggja upp aðstöðu fyrir sportið í nágrenni höfuðborgarsvæðisins.

Þann 28. mars 2007 var svo formlegur stofnfundur Road Race deildar AÍH. Tuttugu og einn einstaklingur gengu í deildina á stofnfundinum en nokkuð fleiri sóttu fundinn.

Road Race deild AÍH er fyrsta deildin innan íþróttafélags sem snýr einungis að málefnum þeirra sem hafa áhuga á að keyra Road Race á Íslandi.
Einnig gefur þetta einstaklingum sem ganga í Road Race deild AÍH möguleika á að sækja um keppnisskírteini FIM og taka þátt í keppnum erlendis fyrir Íslands hönd.
AÍH er aðili að íþróttahreyfingunni og MSÍ. MSÍ er aðili að UEM (Evrópusamtök mótorhjólamanna) og FIM (Alþjóðasamtök mótorhjólamanna) en þau halda meðal annars MotoGP keppnirnar sem sýndar eru á Skjár1.

Fyrsta Road Race æfing Road Race deildar AÍH og MSÍ varð að veruleika þann 28. apríl síðastliðinn og var hún haldin á varnarsvæðinu í Keflavík. Fjölmargir komu á þessa fyrstu Road Race æfingu sem haldin hefur verið á Íslandi og horfðu um 500 manns á bíla og hjól æfa.

Alls tóku 22 þátt í æfingu á hjólum. Voru lang flestir í 1000cc flokk, eða 11 einstaklingar skráðir. Næst komu svo Supermoto hjólin með 6 þátttakendur og loks 600cc-750cc flokkur með 5 skráða þátttakendur. Tvö minniháttar óhöpp urðu á hjólunum en engin meiðsl urðu á mönnum við þessar byltur.

Það var mat allra að dagurinn hefði verið vel heppnaður í alla staði og allir himinlifandi með viðburðinn, það var greinilegt á mörgum þarna að mun fleiri hafa hug á að skrá sig næst þegar svona viðburður verður haldinn.

Sumarið 2007 voru einnig haldnar 4 Road Race æfingar á svæði í Hellnahrauni í Hafnarfirði sem Hafnarfjarðarbær gaf deildinni leyfi til notkunar þessa 4 daga.
Mæting var mjög góð og tókust æfingarnar vonum framar og gefa góð fyrirheit um framtíðina.

Við hjá Road Race deild AÍH vinnum nú í því að fá úthlutuðum svæðum þar sem mögulegt er að halda fleiri æefingadaga þar til lokuð sérhönnuð braut verður byggð á Íslandi. Við leggjum okkur fram um að vinna að því draumur margra, þ.m.t ökukennara, lögregluþjóna, sjúkraflutningamanna og fjölda margra annarra, rætist og braut verði byggð.

Slík braut væri ekki byggð til þess eins að einungis “hraðafíklar” eins og margir kjósa að kalla það, geti keyrt hratt, heldur einnig fyrir þá sem eru að læra að aka bílum og mótorhjólum, lögreglumenn, sjúkraflutningamenn og aðrir sem þurfa, geti æft sig að aka í mismunandi aðstæðum á lokaðri braut þar sem öryggiskröfum er fullnægt.

Þess utan, eru fjöldamargir Íslendingar sem vilja geta keppt í mótorhjólatengdum akstursíþróttagreinum og til þess að Ísland geti átt frambærilega íþróttamenn í akstursíþróttum verður að vera aðstaða til æfinga. Til þess að slík braut verði byggð, eða svæði úthlutað til þeirra nota, þarf vilja hjá ríkinu og sveitarfélögum og einnig stuðning frá fjölmiðlum því við vitum öll hvað mátt þeir hafa.